Jæja enn ein helgin búin vá hvað þær eru fljótar að líða, ekki
það að vikurnar séu líka fljótar að líða.
Allavega er
vikan búin áður en maður veit af.
Önnin í skólanum er líka
að verða búin þó svo að fullt sé af verkefnum efir, á að skila ansi
mörgum á föstudaginn,
þarf að klára að mynda íþróttamyndir, en
ég gerði eina tilraun með þær á laugardaginn á leik Grindavíkur og
Keflavíkur í kvennakörfunni, svo er eftir að mynda svona
uppstillingu á borði, og ein fimm hugtök, nú svo er iðnaðarséría í
gangi og lokaverkefnið sem er þemað yfirgefið.
Nó að gerast þarna en þetta er ógeðslega gaman.
Ég hef svo líka verið að mynda hérna heima búin með tvær
tökur af fermingadrengjum og á svo eftir að klára minn og einn enn
dreng. Já og nuna er meira gaman að taka þar sem ég er kominn
með hvítan bakrunn líka. 

Við fórum í fermingu til hans Axels í dag (hennar Möggu vinkonu)
og það var voða gaman og svaka flott veisla.
Takk kærlega fyrir
okkur.
Auðvitað var borðað þar fullt af góðum mat og kökum
og ekki nó með það svo var haldið í barnaafmæli til Sigríðar
Guðrúnar, en Margeir hélt í aðra fermingaveislu. 

Af Halla er það að frétta að hann er enn þá í Kanada
og kemur heim á Þriðjudag
og þá er hann búin
að vera í 3 vikur í þessari lotu.
Hann á svo
víst að fara aftur 2. apríl vei vei. 
Já hann fer
aftur daginn eftir fermingu hjá Margeir Alex. Já það styttist í
fermingu hjá drengnum.
Bara ein vika eftir í það að lita barnið mitt fermist. VÁ
VÁ VÁ. 

Semsagt held ég búin að gera það sem þarf fyrir þessa fermingu
þá meina ég nú aðalega að hugsa um föt, jú og einhverjar kökur í
eftirrétt. Svo þetta er allt að smella.
jæja nó af bulli í bili. farinn að reyna að sofa í hausinn á mér
svo ég fái nú einhverjar hugmyndir af myndatöku af þessum
hugtökum.


Ps. hugmyndir vel þegnar, á að mynda:: Spennu,
Hik, Hlýju, Endurtekningu, Virðingu,
Veðrun, Leikur, Saman. 



